Með tölvupósti til framkvæmdastjóra 15. mars 2024, tilkynnti Oddný Steina Valsdóttir um úrsögn sína úr varastjórn Lífeyrissjóðs bænda vegna persónulegra ástæðna. Oddnýju Steinu eru þökkuð vel unnin störf í þágu sjóðsins.

 

Á næsta ársfundi Lífeyrissjóðs bænda verður skipað í tvö sæti í aðalstjórn sjóðsins til þriggja ára og tvö sæti í varastjórn til eins og þriggja ára. Nánar síðar.