Öllum greiðandi sjóðfélögum hefur verið sent yfirlit um skráð iðgjöld hjá Lífeyrissjóði bænda fyrir tímabilið janúar til ágúst 2015. Skorað er á sjóðfélaga að bera yfirlitin saman við launaseðla og gera án tafar athugasemdir, ef vanhöld koma í ljós á iðgjaldaskilum. Sjóðfélögum er bent á að hafa tafarlaust samband við sjóðinn, hafi þeir ekki fengið yfirlit frá sjóðnum en telja að vinnuveitandi hafi átt að skila iðgjöldum til sjóðsins.Hafi athugasemdir frá sjóðfélaga, staðfestar með launaseðlum, ekki borist sjóðnum innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits eða birtingu auglýsingar, sé það síðar, og sjóðnum hefur ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna, er sjóðurinn einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd.
Nýjustu fréttir
- Lífeyrissjóður bænda auglýsir eftir framboðum til setu í stjórn sjóðsins.
- Um stjórnarkjör og hvaða gögnum ber að skila.
- Úrsögn úr varastjórn
- Gleðileg jól. Gott og farsælt komandi ár.
- Opnunartími um jól og áramót
- Fjárfestingarstefna 2024
- Kosning formanns og varaformanns
- Niðurstöður rafræns stjórnarkjörs Lífeyrissjóðs bænda
- KOSNING HAFIN – Rafrænt stjórnarkjör stendur yfir dagana 21.-28. ágúst 2023
- Rafrænt stjórnarkjör 21.-28. ágúst 2023