Lokað fyrir heimsóknir á skrifstofu Lífeyrissjóðs bænda, Stórhöfða 23, Reykjavík

b.is.

Í kjölfar tilkynningar um samkomubann vegna COVID-19 í þrjár vikur, sem gildir til og með 12. janúar nk., verður lokað fyrir heimsóknir á skrifstofu Lífeyrissjóðs bænda frá og með 22. desember.

Starfsfólk mun áfram sinna verkefnum sínum og þjónustu við sjóðfélaga.

Á meðan á þessari lokun stendur hvetur sjóðurinn sjóðfélaga til að nýta sér rafræna þjónustu og leita upplýsinga í síma 563 1300, mánudaga til fimmtudaga kl. 10-16 og föstudaga kl. 10-15.

Bent er á að sjóðfélagar geta

  1. nálgast upplýsingar um réttindi sín hjá sjóðnum á sjóðfélagaveflsb.is og
  2. hægt er að sækja um lífeyri , lán og aðra þá þjónustu sem sjóðurinn býður upp á hér.
  3. Launagreiðendur geta fundið margvíslegar upplýsingar um stöðu sína á launagreiðendavef.

 

Starfsfólk svarar enn fremur fyrirspurnum sem berast í tölvupósti, lsb@lsb.is.