Stjórn Lífeyrissjóðs bænda boðar til aukaársfundar fimmtudaginn 31. ágúst 2023 kl. 11, sem haldinn verður á skrifstofu sjóðsins að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík.

Á dagskrá fundarins verður stjórnarkjör, þar sem kosnir verða fjórir stjórnarmenn í aðalstjórn í stað jafn margra stjórnarmanna sem hafa sagt af sér trúnaðarstörfum fyrir sjóðinn. Framboðsfrestur er til kl. 17 fimmtudaginn 3. ágúst 2023.

Einnig verða teknar fyrir á fundinum tillögur um breytingar á samþykktum Lífeyrissjóðs bænda.

Nánari upplýsingar um fundinn, endanleg dagskrá, endanlegar tillögur og fyrirkomulag fundarins að öðru leyti verða auglýstar á heimasíðu sjóðsins, www.lsb.is og í Bændablaðinu 20. júlí 2023.

Reykjavík, 6. júlí 2023.

Stjórn Lífeyrissjóðs bænda

LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA

Stórhöfða 23 –  110 Reykjavík

563 1300 – lsb@lsb.is  –  www.lsb.is