Með tölvupósti til framkvæmdastjóra 2. júní 2023, tilkynnti Skúli Bjarnason, formaður stjórnar um úrsögn sína úr stjórn Lífeyrissjóðs bænda. Í stað Skúla settist í stjórn Lífeyrissjóðs bænda Jóhann Már Sigurbjörnsson, sem var í varastjórn sjóðsins.

 

Erna Bjarnadóttir, varaformaður stjórnar, og Guðbjörg Jónsdóttir tilkynntu um úrsögn sína úr stjórn Lífeyrissjóðs bænda 13. júní 2023 og Örn Bergsson tilkynnti um úrsögn sína úr stjórn sjóðsins 14. júní 2023.  Í stað Ernu settist í stjórn sjóðsins Oddný Steina Valsdóttir, sem var í varastjórn sjóðsins.

 

Eftir framangreindar breytingar er stjórn sjóðsins skipuð þeim Guðrúnu Lárusdóttur, Jóhanni Má Sigurbjörnssyni og Oddnýju Steinu Valsdóttur.