Á fundi stjórnar 23. júní 2023 var ákveðið að boða til aukaársfundar Lífeyrissjóðs bænda 31. ágúst 2023 kl. 11.  Á dagskrá verður meðal annars kosning til stjórnar sjóðsins og samþykktabreytingar. Fyrsta auglýsing um fundinn mun birtast í Bændablaðinu 6. júlí n.k. þar sem nánar verður gerð grein fyrir dagskrá og staðsetningu fundarins.