Lífeyrissjóður bænda auglýsir eftir framboðum til setu í varastjórn

Lífeyrissjóður bænda auglýsir eftir framboðum í tvö sæti í varastjórn til tveggja og þriggja ára.

Um almennt hæfi stjórnarmanna til setu í stjórn lífeyrissjóðs fer samkvæmt 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Framboðsfrestur er til og með 30. maí 2024.  Framboð skulu sendast á netfangið kjornefnd@lsb.is.

Upplýsingar um stjórnarkjörið og hvaða gögnum beri að skila vegna framboðanna, má sjá á vef sjóðsins, www.lsb.is. Með framboði skal fylgja helstu upplýsingar um frambjóðanda ásamt mynd til birtingar á vef sjóðsins.

Stjórnarkjör fer fram á ársfundi Lífeyrissjóðs bænda 20. júní n.k.