Lífeyrissjóður bænda er aðili að Reiknistofu lífeyrissjóða (RL) hf., sem á hugbúnaðarkerfið Jóakim, iðgjalda- og réttindakerfi, og er RL með útvistunarsamning við Init ehf. um rekstur kerfisins.

Stjórn Reiknistofu lífeyrissjóða hf. hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu í tengslum við samning félagsins við Init ehf:

Reiknistofa lífeyrissjóða (RL) sagði í síðustu viku upp samningi sínum við fyrirtækið Init ehf. sem sér um rekstur og þróun á lífeyris-, iðgjalda- og verðbréfakerfinu Jóakim. Þar sem Jóakim er lykilkerfi í starfi þeirra lífeyrissjóða og stéttarfélaga sem nota kerfið, var við uppsögn samningsins lögð áhersla á áframhaldandi rekstur þess næstu mánuði meðan RL tekur ákvörðun um næstu skref.

Þá hefur verið gengið frá samningi við endurskoðunarfyrirtækið Ernst & Young (EY) um úttekt á starfsháttum Init og RL. Félagið mun taka út framkvæmd og efndir Init á samningi við RL og sölu félagsins á þjónustu til þriðja aðila. Einnig verður framkvæmd og eftirfylgni RL á samningnum tekin til skoðunar. Stefnt er að því að EY skili niðurstöðum fyrir lok júní 2021 og verða þær birtar opinberlega.

Almar Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri RL og hefur hann þegar hafið störf.