Greiðsluhlé á afborgunum lána

Lífeyrissjóður bænda mun koma til móts við þá sem hafa tekið lán hjá sjóðnum og sjá fram á erfiðleika við að standa í skilum vegna útbreiðslu COVID-19. Boðið verður upp á greiðsluhlé til allt að 6 mánaða.

Sjóðfélagar sem geta greitt afborganir af lánum sínum eru hvattir til að gera það enda er ekki um niðurfellingu gjalddaga að ræða heldur er þeim eingöngu frestað. 

Unnið er að útfærslu hjá sjóðnum. Nánari upplýsingar munu birtast á heimasíðu sjóðsins.