Tvö framboð bárust um tvö sæti í aðalstjórn

Lífeyrissjóður bænda auglýsti eftir framboðum til setu í stjórn sjóðsins, tvö sæti í aðalstjórn til þriggja ára og tvö sæti í varastjórn til tveggja og þriggja ára. Tvö framboð bárust um tvö sæti í aðalstjórn, frá þeim Jóhanni Má Sigurbjörnssyni og Völu Valtýsdóttur og verða þau því sjálfkjörin til setu í stjórn sjóðsins á ársfundi Lífeyrissjóðs bænda 20. júní n.k.  Engin framboð bárust um tvö sæti í varastjórn.

Hægt er að nálgast kynningu á frambjóðendum til aðalstjórnar með því að smella á hlekki undir nafni þeirra.

Jóhann Már Sigurbjörnsson Kynning / Ferilskrá

Vala Valtýsdóttir Ferilskrá