Rafrænt stjórnarkjör um eitt sæti í stjórn Lífeyrissjóðs bænda fer fram á sjóðfélagavef www.lsb.is frá kl. 12:00 2. júní til kl. 22:00 9. Júní.
Tveir eru í framboði um eitt sæti í aðalstjórn: Bjartur Thorlacius og Þorbjörg Inga Jónsdóttir.
Á vef sjóðsins www.lsb.is er kynning á frambjóðendunum.
Allir sjóðfélagar sem hafa greitt til Lífeyrissjóðs bænda og eiga hjá honum réttindi hafa atkvæðisrétt við stjórnarkjörið.
Innskráning er með rafrænum skilríkjum eða íslykli.
Sjóðfélögum gefst einnig kostur á að greiða atkvæði kl. 9-14 virka daga á skrifstofu sjóðsins á meðan kosning stendur yfir.
LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA
Stórhöfða 23 – 110 Reykjavík
s. 563 1300 – lsb@lsb.is – www.lsb.is