Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda fór fram 20. júní 2024. Auk hefðbundinna dagskrárliða, var tilkynnt um niðurstöðu stjórnarkjörs og tilnefningu löggilts endurskoðanda í endurskoðunarnefnd sjóðsins.

Jón Gunnsteinn Hjálmarsson var tilnefndur í endurskoðunarnefnd Lífeyrissjóðs bænda.

Til aðalstjórnar fékk Jóhann Már Sigurbjörnsson endurnýjað umboð og nýr stjórnarmaður er Vala Valtýsdóttir. Þau eru skipuð til næstu þriggja ára. Í varastjórn voru skipuð þau Kristófer Tómasson til þriggja ára og Berglind Ósk Alfreðsdóttir til tveggja ára.

Stjórn Lífeyrisssjóðs bænda er skipuð eftirtöldum eftir ársfundinn:

Aðalstjórn:

  1. Jóhann Már Sigurbjörnsson, formaður
  2. Bjartur Thorlacius
  3. Einar Ófeigur Björnsson
  4. Vala Valtýsdóttir
  5. Vigdís Häsler

Varastjórn:

  1. Kristófer Tómasson
  2. Berglind Ósk Alfreðsdóttir

Framkvæmdastjóri er Ólafur K. Ólafs.

Glærur frá ársfundi LSB 2024