Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn föstudaginn 9. júní 2017 kl. 16 að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Almenn ársfundarstörf skv. samþykktum sjóðsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisþegar, eiga rétt til fundarsetu.
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda