Vegna óvissu um verðtryggð lán með breytilegum vöxtum í kjölfar dóms Hæstaréttar nr. 55/2024 mun Lífeyrissjóður bænda að svo stöddu eingöngu bjóða sjóðfélögum verðtryggð sjóðfélagalán með föstum vöxtum út lánstímann.
Í þessari ákvörðun felst ekki afstaða til mögulegra áhrifa dómsins á vaxtaákvæði eldri lána með breytilegum vöxtum. Niðurstaða úr þeirri athugun liggur ekki fyrir. Niðurstöður annarra tengdra mála sem nú eru rekin fyrir dómstólum kunna einnig að hafa áhrif þar á.