Breytingar urðu á stjórn Lífeyrissjóðs bænda 8. október 2024 þegar Vigdís Häsler, stjórnarmaður í Lífeyrissjóði bænda sagði sig úr stjórn sjóðsins. Berglind Ósk Alfreðsdóttir, varamaður í stjórn sjóðsins mun setjast í aðalstjórn í stað Vigdísar.

Eftir framangreindar breytingar eru í aðalstjórn Vala Valtýsdóttir formaður stjórnar, Jóhann Már Sigurbjörnsson varaformaður, Berglind Ósk Alfreðsdóttir, Bjartur Thorlacius og Einar Ófeigur Björnsson. Í varastjórn er Kristófer Tómasson.

 

Framkvæmdastjóri er Ólafur K. Ólafs.