Fjársýsla ríkisins sendi út tilkynningu, dags. 28. júlí 2021, í bréfpósti með póststimpli 30. júlí 2024 til 889 bænda um skuldajöfnuð á beingreiðslum vegna ársins 2021, meðal annars vegna iðgjaldagreiðslna í lífeyrissjóð.
Í kjölfarið höfðu margir sjóðfélagar samband við Lífeyrissjóð bænda þar sem þeir áttuðu sig ekki á þessari tilkynningu fjársýslunnar enda hefur heimild í lögum um skuldajöfnuð á beingreiðslum vegna iðgjaldagreiðslna verið aflögð.
Engar skuldfærslur voru framkvæmdar vegna þessa, heldur var vegna þessarar villu í kerfi Fjársýslu ríkisins send út eldri tilkynning frá árinu 2021.
Fjársýsla ríkisins hefur sent tilkynningu inn á www.island.is til allra hlutaðeigandi, dags. 23. ágúst 2024 þar sem framangreint er áréttað og beðist afsökunar á þessu.