Sjóðfélagayfirlit fyrir tímabilið janúar til ágúst 2019 fyrir alla greiðandi sjóðfélaga í Lífeyrissjóði bænda eru nú aðgengileg á sjóðfélagavef. Vinsamlegast hafið samband við sjóðinn ef óskað er eftir að fá yfirlit sent í pósti.
Skorað er á sjóðfélaga að bera yfirlitin saman við launaseðla og gera án tafar athugasemdir, ef vanhöld koma í ljós á iðgjaldaskilum. Jafnframt er sjóðfélögum bent á að hafa tafarlaust samband við sjóðinn telji þeir að vinnuveitandi hafi átt að skila iðgjöldum til sjóðsins.
Hafi athugasemdir frá sjóðfélaga, staðfestar með launaseðlum, ekki borist sjóðnum innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits eða birtingu auglýsingar, sé það síðar, og sjóðnum hefur ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna, er sjóðurinn einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd.
LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA
Stórhöfða 23 – 110 Reykjavík
s. 563 1300 – lsb@lsb.is