Á næstu dögum verður öllum greiðandi sjóðfélögum sent yfirlit um skráð iðgjöld hjá Lífeyrissjóði bænda fyrir árið 2016 fram til febrúar 2017.
Skorað er á sjóðfélaga að bera yfirlitin saman við launaseðla og gera án tafar athugasemdir, ef vanhöld koma í ljós á iðgjaldaskilum.
Sjóðfélögum er bent á að hafa tafarlaust samband við sjóðinn, hafi þeir ekki fengið yfirlit frá sjóðnum en telja að vinnuveitandi
hafi átt að skila iðgjöldum til sjóðsins.Hafi athugasemdir frá sjóðfélaga, staðfestar með launaseðlum, ekki borist sjóðnum innan
60 daga frá dagsetningu yfirlits eða birtingu auglýsingar, sé það síðar, og sjóðnum hefur ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna,
er sjóðurinn einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd.