Lífeyrissjóður bænda vekur athygli launagreiðenda á því að 1. janúar 2023 taka gildi breytingar á lögum um lífeyrissjóði. Þá hækkar lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð úr 12% í 15,5% hjá öllum launþegum og þeim sem stunda sjálfstæðan atvinnurekstur. Nánari upplýsingar um fyrirhugaða lagabreytingu má finna á vef Alþingis.

    • Hækkunin gildir líka fyrir einyrkja, verktaka og sjálfstætt starfandi.
    • Lágmarksiðgjaldið 15,5% skiptist í 4% sem er iðgjald launþega og 11,5% sem er mótframlag launagreiðanda.

    Leiðbeiningar vegna innsendingar skilagreina
    Launagreiðendur sem skila iðgjöldum í gegnum launakerfi

    • Ef skilagrein er send í gegnum launakerfi hjá launagreiðanda er prósentu breytt í launakerfinu í eitt skipti áður en skilagrein er send til sjóðsins.

    Launagreiðendur sem skila iðgjöldum í gegnum Launagreiðendavef LSB breyta hér slóð til LSB

    • Frá og með janúar skilagrein 2023 verða skilagreinar sem berast gegnum fyrirtækjavef sjálfkrafa með mótframlag 11,5%.
      Launagreiðendur sem þegar hafa skilað inn skilagreinum vegna janúar 2023 með lægri prósentu en 11,5% verður sjálfkrafa breytt hjá sjóðnum.