Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn föstudaginn 3. júní 2022 kl. 14 að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík.

Dagskrá:

  • Venjuleg ársfundarstörf.
  • Stjórnarkjör skv. samþykktum.
  • Tillaga til breytinga á samþykktum sjóðsins.
  • Önnur mál.

Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu.

LSB auglýsir eftir framboðum í eitt sæti í aðalstjórn.

Þeir sem gefa kost á sér þurfa að fullnægja kröfum um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. lögum nr. 129/1997, reglum FME og samþykktum sjóðsins og vera tilbúnir til að gangast undir hæfismat FME.  Framboðsfrestur er til og með 6. maí 2022.

Upplýsingar um stjórnarkjörið og hvaða gögnum beri að skila vegna framboða til setu í stjórn sjóðsins má sjá hér.

 

Stjórn Lífeyrissjóðs bænda

 

Lífeyrissjóður bænda     –      Stórhöfða 23     –     110 Reykjavík

Sími 563 1300      –      lsb@lsb.is      –      www.lsb.is